Golfklúbbur Suðurnesja

Golfklúbbur Suðurnesja

Share

Golfklúbbur Suðurnesja

03/06/2026

Stigamót GS #2 – þriðjudaginn 9. júní ⛳️

Næsta stigamót fer fram þriðjudaginn 9. júní og við hvetjum félagsmenn sem vilja taka þátt að skrá sig tímanlega á rástíma. Síðasti rástími í mótið er kl. 19:00.

Á leikdegi þarf að koma við í skálann, greiða í mótið og þar fá keppendur skorkort ásamt inneign fyrir taco að eigin vali hjá Nítjánda 🌮

Þátttakan síðast var frábær en alls tóku 77 kylfingar þátt.

Punktakeppni:
Hinrik Snær Hjörleifsson – 42 punktar
Ágúst Orrason – 40 punktar
Guðný Ólöf Gunnarsdóttir – 39 punktar

Höggleikur
Pétur Þór Jaidee vann höggleikinn á 71 höggi.

Nándarverðlaun
Jóhannes Bjarni Bjarnason var næstur holu á 12. holu í síðasta móti. Í Stigamóti GS #2 verða nándarverðlaunin á 16. holu.

Verðlaun úr síðasta móti má sækja í golfskálanum.

Við hvetjum einnig þá sem eiga leik í 2. umferð Bikarkeppni GS til að slá sér saman í holl og nýta daginn vel.

Sjáumst í Leirunni! 🏌️‍♂️

31/05/2026

Miðvikudagsfjör - Kvenna- og karlagolf

Miðvikudagar eru skemmtidagar hjá Golfklúbbi Surðurnesja þar sem meðlimir geta skráð sig og spilað 9 holur. Þetta er tilvalinn leið til að kynnast nýju fólki og fallega vellinum okkar. Mismunandi fyrirkomulag er hvern miðvikudag og er það gert til að kynna fyrir þátttakendum fjölbreyttar leiðir til að njóta golfsins.

Leikfyrirkomulagið þennan miðvikudag er tveggja manna Texas Scramble. Þau sem vilja spila saman skrá sig saman á teig. Stakir skrá sig á teig og fá liðsmann með sér.

​Karlar spila holur 1-9 og skrá sig í fyrra hollið af rástímum (17:03-18:51).

Konur spila holur 10-18 og skrá sig í seinna hollið af rástímum (17:03-18:51).

Að leik loknum hvetjum við þátttakendur að setjast inn í skála í spjall.

Við hlökkum til að sjá sem flesta.

Skráning í Golfboxinu og hérna: https://tourentry.golfbox.dk/?cid=5453292

Photos from Golfklúbbur Suðurnesja's post 16/05/2026

Stigamót GS - Breytt fyrirkomulag á skráningu.

Góðan daginn kæru félagar. Breytingar verða á fyrirkomulagi skráningar í stigamótin okkar þetta sumarið. Þau sem ætla að taka þátt í mótinu skrá sig á rástíma, þann dag sem mótið er, í rástímaskráningunni í Golfboxinu, koma svo inn í golfverslun fyrir hring, tilkynna skráningu í mótið, greiða mótsgjaldið, fá skorkort sem þau skila svo inn að loknum hring sama dag.

Rástímar sem verða í boði eru frá 8:30-19:00.

Mótsgjaldið er 2900kr og innifalið í því er hamborgari og franskar frá Nítjándu Bistro.

Með golfkveðju,
Mótanefnd GS.

Golfklúbbur Suðurnesja 14/05/2026

Vinsælu barna og unglinganámskeiðin eru komin á síðuna og skráning hafin.

Golfklúbbur Suðurnesja Finndu námskeið í vefverslun Golfklúbbur Suðurnesja. Keyrt áfram af Abler

12/05/2026

Kæru félagar.

Vegna hópkennslu (8 manns) verður afar takmarkað pláss í skýlinu þessa vikuna á eftirfarandi tímum.

Þriðjudagur 12.5 kl. 11.30-12.30 og 17-20.
Fimmtudagur 14.5 kl. 17-19.

Þakka skilninginn
Siggi Palli

09/05/2026

Golfreglurnar í símann.

Golfreglur 2023 eða Rules of golf 2023 er frábært app sem nauðsynlegt er að hafa í símanum. Þarna er hægt að fletta upp reglum og finna út hvað skal gera við mismunandi aðstæður.

GS vill hvetja alla að sækja appið, skoða reglurnar og gera golfleikinn betri.

Photos from Golfklúbbur Suðurnesja's post 05/05/2026

Það var mikil gleði á konukvöldi GS kvenna þann 30. apríl.
Uppselt var á viðburðinn og sérstaklega ánægjulegt hversu margar nýjar GS konur mættu, enda hefur konum í Golfklúbbi Suðurnesja fjölgað töluvert á síðustu misserum. Í dag eru þær 274 talsins, eða um 25% félagsmanna.

Kvennaráð kynnti dagskrá sumarsins, boðið var upp á glæsilega tískusýningu frá Golf Company og að sjálfsögðu var happdrættið á sínum stað – sem er helsta fjáröflun GS kvenna.

Við viljum þakka öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem styrktu okkur með vinningum og gerðu okkur kleift að halda jafn glæsilegt kvöld og raun bar vitni.

Veitingar frá Nítjándu voru sérlega glæsilegar og bragðgóðar.

27/04/2026

Golfsumarið er hafið!

Við höfum opnað á sumarflatir.☀️
Afhverju ekki að kíkja í golf?🏌️‍♂️
Rástímaskráning í golfbox⛳️

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Keflavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Garðskagavegur
Keflavík
250