Skautafélag Reykjavíkur listskautar

Skautafélag Reykjavíkur listskautar

Share

Listskautadeild Skautafélags Reykjavíkur býður upp á þjálfun fyrir alla! Skautafélag Reykjavíkur skiptist í tvær deildir; Hokkídeild og Listskautadeild.

Vertu SR-ingur
Skráningar á: https://www.abler.io/shop/sr/listhlaup
Liðsfatnaður: https://craftverslun.is/collections/skautafelag-reykjavikr Fyrstu heimildir í sögu Skautafélags Reykjavíkur eru frá miðri 19 öld þegar nemar í Latínuskólanum stunduðu skautahlaup á Tjörninni. Félagið var fyrst stofnað 1873 af menntaskólanemum og er eitt af elstu íþróttafélögum Reykjavíkur. Listskautadeild félagsins var stofnuð 1992.

29/05/2026

31. maí verður hátíðlegur í Skautahöllin í Laugardal

Tvær sýningar:
kl 12:00 https://stubb.is/events/oQ3Gan
kl:14:00 https://stubb.is/events/n25w3b

Vorhátíð 15:30-17:00 (hoppukastalar, grill og skautaball)

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn/Reykjavik Family Park and Zoo verður einnig í hátíðarskapi þessa helgi og gera má ráð fyrir miklum fjölda á svæðinu.

*Mælum með að mæta tímanlega til að leggja bílnum (hægt að leggja hjá Laugardalshöllinni), skanna miðann og finna sæti áður en sýningin hefst*

26/05/2026

Vorsýning Skautaskóla LSR Sunnudaginn 31. maí
Miðasala: https://stubb.is/events/oQ3Gan

Einnig koma fram valin atriði úr framhaldshópum.

04/04/2026

Thank you Vladimíra Milčinskáfor coming to our ⛸️Easter camps ✨️
🐣Wishing you and all of our skating family a Happy Easter 💛

26/03/2026

Nýtt fréttabréf 🤓

Margt er í gangi þessa dagana en veðrið er því miður ekki að hjálpa til. Morgunæfingar voru felldar niður og vonum við að ekki þurfi að fella fleiri æfingar niður vegna veðurs. Við höfum þó brugðist við stöðunni og gefið hokkíinu sunnudagskvöldið okkar til að spila leik sem frestast vegna veðurs.

Vormót, páskabúðir og páskafrí eru handan við hornið. Í apríl opnar svo fyrir skráningar í æfingabúðir, bæði fyrir skautaskólann, yngri iðkendur og lengra komna.

Aðalfundur deildarinnar verður haldinn 16. apríl https://skautafelag.is/2026/03/adalfundur-listskautadeild/

Keppnisröð, úrslit og annað er hægt að skoða á síðu Vormótsins: https://www.iceskate.is/vormot-iss/

LSR óskar öllum sínum keppendum góðs gengis um helgina 💙
Áfram SR!

19/03/2026

Sumar skautanámskeið!
Listhlaupadeild Skautafélags Reykjavíkur stendur fyrir sumarnámskeiðum í sumar eins og fyrri sumur. Í boði verða heilsdag-og hálfsdagsnámskeið í Skautahöllin í Laugardal

Skipulögð dagskrá fer fram frá 9:00-16:00/09:00-12:00/13:00-16:00 gæsla verður í boði 30 mínútur áður en námskeið hefst og eftir að því lýkur (08:30-16:30), einnig verður hægt að skrá sig í heitan mat í hádeginu frá Kaffi Flóru.

Dagskrá námskeiðanna er mjög fjölbreytt og er lituð af hreyfingu, útiveru, ferð í húsdýragarðinn og auðvitað skellum við okkur á skauta á hverjum degi bæði fyrir og eftir hádegi.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður á hvert námskeið. Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á [email protected]

Skráningar hefjast 10. apríl á abler: https://www.abler.io/shop/SR

Byggjum fram­tíð á ís – fyrir börnin okkar og sam­fé­lagið allt - Vísir 28/02/2026

Maria Anna Hedman með góða grein á vísi í dag 💪 skilaboðin eru skýr, við skorum á bæjarfélög til að sjá sóma sinn í að bjóða upp á ⛸️íþróttir fyrir alla í sinni heimabyggð.

Byggjum fram­tíð á ís – fyrir börnin okkar og sam­fé­lagið allt - Vísir Umræðan um uppbyggingu skautasvella í Reykjavík er bæði tímabær og nauðsynleg. Árangur íshokkís – sem hefur náð miklum árangri þrátt fyrir takmarkaða aðstöðu – sýnir hvað er hægt þegar vilji og gæði hittast. En þetta snýst ekki um eina íþróttagrein. Þetta snýst ...

22/02/2026

Hvetjum alla til að kíkja í skautahöllina í tilefni dagsins 🥰🥰

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Múlavegur 1
Reykjavík
104