Gudni Gunnarsson

Call Directions Website Contact the business

Gudni Gunnarsson Í meira en fjörutíu ár hefur Guðni lagt sig fram við þróun heilræktar, verið brautryðjandi einkaþjálfara og lífsráðgjafa á Íslandi.

Guðni Gunnarsson veitir persónulega ráðgjöf í lífseflingu auk þess að halda námskeið í hagnýtri færni í heilsu- og lífsfærniráðgjöf þar sem fagleg þekking og persónuleg reynsla fléttast saman í kerfinu GlóMotion. Árið 1982 stofnaði hann Vaxtarræktina hf., gaf út og ritstýrði tímaritinu Líkamsrækt og næring og var leiðandi í heildrænni þjálfun hugar og líkama hjá Mátt heilsurækt. Á árunum 1990–2006 bjó hann í Los Angeles þar sem hann þróaði Rope Yoga, nýtt kerfi sem sameinar hugrækt, hreyfingu, næringu og orkuvinnu. Þegar hann flutti heim árið 2006, stofnaði hann ásamt Guðlaugu Pétursdóttur Rope Yoga Setrið og þróuðu þau það áfram í GlóMotion, sem hefur verið kennt og miðlað síðan 2007, bæði til einstaklinga, hópa og í kennaranámi. Guðni hefur skrifað fjölmargar bækur um hugrækt og heilsurækt.

01/11/2026
Sunnudagshugleiðingin kemur á sunnudagsmorgni.Beint í pósthólfið ykkar.Þið þurfið ekki að gera neitt annað en að skrá yk...
18/10/2026

Sunnudagshugleiðingin kemur á sunnudagsmorgni.
Beint í pósthólfið ykkar.

Þið þurfið ekki að gera neitt annað en að skrá ykkur á póstlistann á rys.is – og svo bara opna póstinn með kaffibollanum á sunnudagsmorgni, áður en dagurinn fer af stað og áður en síminn byrjar að kalla.

Smá stund með ykkur sjálfum.

Skráið ykkur á rys.is

18/10/2026
18/10/2026

Kæra samfélag,

Allt sem við veitum athygli vex og dafnar. Í sunnudagshugvekju vikunnar beinum við athyglinni að orkunni: hvað hún er, hvaðan hún kemur og hvert hún fer.

Hvert fer orkan?

Flest þekkjum við orkuleysi af og til. Stundum er það þreyta, stundum er eins og glussann vanti á kerfið og við verðum þung. Þá er eðlilegt að spyrja hvert orkan fór. Er það vinnan, hjónabandið eða börnin? Daglegu vonbrigðin þegar tilgangurinn er óljós og ástríðan dauf? Æfingarnar sem við stundum án gleði?

Svarið kemur kannski á óvart. Mestu útgjöldin eru andlega ofbeldið sem við beitum okkur sjálf. Þau verða þegar við gerum lítið úr okkur og þrætum fyrir vanmátt okkar. Útgjöldin eru viðnámið, streitan, reiðin og ásakanirnar, bæði í eigin garð og annarra. Þau eru óttinn sem við viðhöldum og áhyggjurnar sem við notum eins og bæn.

Þetta er ekki ásökun heldur boð um að horfast í augu við hvernig við rekum fyrirtækið sem við köllum líf. Er innstreymið meira en útstreymið? Þegar útstreymið verður margfalt meira köllum við það kulnun. Þá höfum við gengið svo á okkur að ekkert er eftir.

My friend Ella Björnsdóttir's book Lifetraps in Leadership is close to hitting a bestseller list today. If you buy one c...
18/10/2026

My friend Ella Björnsdóttir's book Lifetraps in Leadership is close to hitting a bestseller list today. If you buy one copy on Amazon today, it counts toward the push. It is a beautiful book about the patterns we build young to stay safe, and what they cost us later. Would you pass it on to a few people too?

[Amazon-hlekkur]– Buy one copy today: https://a.co/d/00ioLWa3

https://www.buzzsprout.com/2200401/episodes/19858862
11/10/2026

https://www.buzzsprout.com/2200401/episodes/19858862

Í þættinum ræðir Erla við Guðna Gunnarsson um vitund, athygli, ábyrgð, viðnám, höfnun, þakklæti og hvað þarf að gera til þess að vera virkur þátttakandi í eigin lífi.Guðni hefur verið áberandi í umræðunni um heilsu, hreyfingu, jóga og sjálfsrækt u...

Þú getur ekki hafnað þér til heilsuÍ þættinum ræðir Erla við Guðna Gunnarsson um vitund, athygli, ábyrgð, viðnám, höfnun...
11/10/2026

Þú getur ekki hafnað þér til heilsu

Í þættinum ræðir Erla við Guðna Gunnarsson um vitund, athygli, ábyrgð, viðnám, höfnun, þakklæti og hvað þarf að gera til þess að vera virkur þátttakandi í eigin lífi.

Guðni hefur verið áberandi í umræðunni um heilsu, hreyfingu, jóga og sjálfsrækt um árabil.

Guðni sem notar íslenskuna svo fallega með skilgreingum á orðum sem við notum hugsunarlaust, hefur meðal annars skrifað bækurnar Máttur athyglinnar, Máttur viljans og Máttur þakklætis.

Hann hefur í gegnum tíðina talað mikið um athygli, ábyrgð, nærveru, val og það hvernig við sjálf getum haft áhrif á það hvernig við upplifum lífið.

Í þættinum ræðir Erla við Guðna Gunnarsson um vitund, athygli, ábyrgð, viðnám, höfnun, þakklæti og hvað þarf að gera til þess að vera virkur þátttakandi í eigin lífi.Guðni hefur verið áberandi í umræðunni um heilsu, hreyfingu, jóga og sjálfsrækt u...

Kæra samfélag,Sunnudagshugvekjan að þessu sinni fjallar um ávöxtinn af sjö skrefum varanlegrar velsældar.Skrefin eru sjö...
11/10/2026

Kæra samfélag,

Sunnudagshugvekjan að þessu sinni fjallar um ávöxtinn af sjö skrefum varanlegrar velsældar.

Skrefin eru sjö, en afleiðingarnar af þeim eru magnaðar. Allt sem við veitum athygli vex og dafnar. Athyglin er auðlindin. Þegar við veitum athygli í umgjörð á hverjum degi og eflum vitundina verður heildarafleiðingin það sem við köllum varanlega velsæld. Stundum köllum við það ljóma, að vera glóandi og bjartur, tendraður og upprifinn af eigin tilvist og lífinu eins og það birtist augnablik fyrir augnablik.

ÖRLÆTI ER ÁVÖXTUR VEGFERÐARINNAR

Þegar við getum verið þakklát, höfum opnað hjartað og erum ekki lengur hrædd við að þiggja, við að lifa eða við okkur sjálf, þegar við beitum okkur ekki lengur höfnun, afneitun eða skömm, þá erum við frjáls. Sá sem er frjáls og þakklátur verður gjöfull. Hann getur gefið af sér í öllum aðstæðum, verið einlægur, heiðarlegur og virkur hlustandi, og veit að nærvera hans hefur jákvæð áhrif á umhverfið.

Þetta gerum við í frelsi, ekki eins og í viðskiptum með væntingum, heldur af því að okkur líður einfaldlega best þegar við erum glöð, ljómandi og gjöful. Að búa í örlæti er að vita að það er alltaf nóg. Skortur er ekki til í raun. Hann er hugtak, einhæft viðhorf sem við búum til sjálf í hugskotum okkar.

Skoða myndband:

Skrefin eru sjö, en afleiðingarnar af þessum skrefum eru magnaðar. ...

07/09/2026

Heilsu- og lífsfærniráðgjafanámið. Ferðalag fyrir þig. Spurningar og svör.

Guðni Gunnarsson og Gulla Pétursdóttir tóku saman spurningum um hvað verið er að kenna á námskeiðinu, sem varir í eitt ár. Velt upp spurningunni af hverju vegferðin byrjar alltaf hjá manni sjálfum og hvaða breytingar verða oftast ofaná hjá fólki, sem fer í gegnum “Sjö skref varanlegrar velsældar”.

Guðni talar meðal annars um:
🔑 Af hverju maður getur ekki gefið öðrum það sem maður á ekki sjálfur?
🔑 Hvernig heiðarleiki og heitbinding við sjálfan sig eru undirstaða allrar breytinga.
🔑 Af hverju við frestum, svíkjum og ljúgum að sjálfum okkur – og hvernig hægt er að byggja upp traust á ný.
🔑 „Allt sem við veitum athygli vex og dafnar“ – hvað það þýðir í daglegu lífi
🔑 Hvernig hann myndi svara þeim sem finna löngun til breytinga en eru ekki viss hvort þau eigi að stökkva á námið.

Heilsu- og Lífsfærniráðgjafanámið er ekki bara nám sem kennir aðferðir - námið er vegferð sem byrjar á því að vakna til vitundar um eigin hegðun, hugsanir og tilfinningar. Vegverðin endar með manneskju sem er tilbúin að leiða - fyrst sjálfa sig og svo aðra.

📍 Skólasetning: 12. september 2026
📖 Nánar um námið og skráningu: https://rys.is/product/lifsfaerni-radgjafarettindi/

---

⏱️ Efnisyfirlit
00:00 Inngangur
00:14 Hvað erum við í raun að kenna?
01:16 Af hverju byrjar þetta alltaf á manni sjálfum?
02:05 Hvaða breytingar sér Guðni hjá fólki sem lýkur náminu?
03:00 Af hverju svíkjum við sjálf okkur? Um heimild og traust
05:57 Er þetta þungt – eða getur þetta verið skemmtilegt?
07:04 Sjö skrefin útskýrð frá grunni
08:45 „Allt sem við veitum athygli vex og dafnar“
09:48 Ertu að hugsa um að taka skrefið en ekki viss?
11:56 Hvað hugsar þú mest um á hverjum degi?
14:16 Ákvörðunin sem breytir öllu

---

06/09/2026

Sunnudagshugvekjan 6. September, 2026 Allt sem þú veitir athygli ver og dafnar! Áhersla dagssins: Tilgangur er forsenda ástríðu... https://youtu.be/SCWy-XsC9HU

Address

Garðabær

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gudni Gunnarsson posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Gudni Gunnarsson:

Shortcuts

Share

Nearby gyms & sports facilities