ManUtd Iceland

ManUtd Iceland Opinber stuðningsmannasíða Manchester United á Íslandi.

LUKKUHJÓLIÐ – MANCHESTER UNITED vs. RÓMAOld Trafford | 3. nóvemberSum United-augnablik gleymast aldrei. Sigurmarkið á sí...
22/09/2026

LUKKUHJÓLIÐ – MANCHESTER UNITED vs. RÓMA
Old Trafford | 3. nóvember

Sum United-augnablik gleymast aldrei. Sigurmarkið á síðustu sekúndunni. Fyrsta heimsóknin á Old Trafford. Faðmlagið við bláókunnugan mann þegar boltinn söng í netinu árið 1999!

Hvaða United-augnabliki gleymir ÞÚ aldrei?
Sendu okkur eina augnabliks setningu á [email protected] og þú gætir unnið 2VIP-miða á Manchester United gegn Róma!

Fyrir félagsmenn með greitt árgjald.
Þátttöku lýkur 3. október.
Aukavinningur: United-treyja!
Leikurinn er á vegum Manchester-klúbbsins og BETSSON.

6 VIP MIÐAR LAUSIR Á MAN UTD – TOTTENHAM!Við erum núna með 6 VIP miða lausa á stórleik Manchester United – Tottenham á O...
17/09/2026

6 VIP MIÐAR LAUSIR Á MAN UTD – TOTTENHAM!
Við erum núna með 6 VIP miða lausa á stórleik Manchester United

– Tottenham á Old Trafford 10. október.

Staðsettir í Sir Bobby Charlton Stand
Frábær sæti á einum besta stað Old Trafford
Aðeins 6 miðar í boði

Áhugasamir sendi okkur tölvupóst á [email protected]
Setjið „Man Utd vs Tottenham“ í skýringu/póstefni.
Fyrstur kemur – fyrstur fær!

Man utd vs Sabah leikskrá
10/09/2026

Man utd vs Sabah leikskrá

Dive into our extensive resources on the topic that interests you. It's like a masterclass to be explored at your own pace.

LUKKUHJÓLIÐ TEKUR NÝJAN SNÚNING!Gríðarlegur fjöldi félagsmanna tók þátt síðast og við erum bara rétt að byrja!Næst er þa...
06/09/2026

LUKKUHJÓLIÐ TEKUR NÝJAN SNÚNING!
Gríðarlegur fjöldi félagsmanna tók þátt síðast og við erum bara rétt að byrja!

Næst er það Brighton og tveir miðar á Old Trafford verða í pottinum! ⚽️

Allir skráðir félagsmenn eru sjálfkrafa með í pottinum. Þeir sem sendu okkur póst vegna Tottenham-leiksins þurfa því ekkert að gera.

Deildu áfram og vertu með í öflugasta United-samfélagi landsins!
MUSC Iceland × Betsson United together.

Til hamingju, Halldór Reimarsson!Þú varst sá heppni í Tottenham Lukkupottinum og hefur unnið tvo miða á Old Trafford í b...
06/09/2026

Til hamingju, Halldór Reimarsson!
Þú varst sá heppni í Tottenham Lukkupottinum og hefur unnið tvo miða á Old Trafford í boði Betsson og MUSC Iceland! ⚽ Nú er ekkert annað að gera en að finna rétta ferðafélagann, dusta rykið af United-treyjunni og byrja að hita upp söngröddina!
The Theatre of Dreams bíður!

Við vonum að þú eigir eftir að skemmta þér konunglega, upplifa magnaða stemningu á Old Trafford og að sjálfsögðu sjá United sækja þrjú stig! Innilega til hamingju, Halldór og góða skemmtun! ❤️ Stuðningsmannaklúbbur Manchester United á Íslandi

31/08/2026

⚽️ OLD TRAFFORD KALLAR! ⚽️
Fyrsti heimaleikur tímabilsins var frábær og nú er komið að því að einn heppinn félagi fái að upplifa stemninguna á Old Trafford í eigin persónu!
Lukkupotturinn okkar færir tveimur heppnum aðilum miða á stórleikinn Man Utd v Tottenham, í boði Lukkuhjólsins. Samstarfsverkefnis MUSC Iceland og Betsson.
Það besta? Allir félagsmenn MUSC Iceland eru sjálfkrafa skráðir í pottinn
Langar þig að vera á staðnum þegar rauða liðið mætir Spurs? Sendu póst á [email protected] og tryggðu þér sæti í pottinum.
• Dregið úr innsendum pósti: 6. september
• Vinningshafi tilkynntur á Facebook-síðu okkar: 7. sept.

Lukkuhjólið er samstarfsverkefni MUSC Iceland og Betsson
31/08/2026

Lukkuhjólið er samstarfsverkefni MUSC Iceland og Betsson

10/08/2026
🔴 Draumurinn um Old Trafford byrjar hér! 🔴Félagsgjöld Stuðningsmannaklúbbs Manchester United á Íslandi eru komin í banka...
14/06/2026

🔴 Draumurinn um Old Trafford byrjar hér! 🔴
Félagsgjöld Stuðningsmannaklúbbs Manchester United á Íslandi eru komin í bankann.

Og nú er rétti tíminn til að tryggja sér aðild fyrir komandi tímabil.

Með árgjaldinu færðu meðal annars:
> Veglegan gjafapakka
Sendan út um mánaðamót nóvember og desember.

> Forgang að miðum á heimaleiki Manchester United
Félagsmenn fá aðgang að því að kaupa staka miða á alla heimaleiki tímabilsins.

> Forgang að VIP-miðum
Þar á meðal Club Level og Sir Bobby Charlton Suite.

> Forgang að miðum á útileiki
Meðal annars á alla leiki Manchester United í London.

⚽ Forgang að Matchday Experience á Hotel Football
Ótrúleg upplifun fyrir og eftir leik og fullkomin Old Trafford upphitun.

🎡 Lukkuhjólið MUSC Iceland og BETSSON heldur áfram!
Lukkuhjólið sló rækilega í gegn á síðustu leiktíð og verður á fullum snúningi allt næsta tímabil.

Vinningahafar, sem eru félagsmenn, fá sannkallaða draumaupplifun:
>Tveir miðar á besta stað á Old Trafford
> Aðgangur að glæsilegu Manchester Suite
> Upplifun sem toppar allt!
Þetta er fyrir stuðningsfólk sem vill magnaða upplifun, frábær sæti og ógleymanlega ferð á Old Trafford.

Með aðild styður þú jafnframt góð málefni:
❤️ Ferðasjóð fatlaðra, með aðgengi að hjólastólasvæði á Old Trafford
❤️ Styrktarsjóð langveikra barna
Ekki láta drauminn fara fram hjá þér.

Skráðu þig í dag og vertu hluti af Manchester United-fjölskyldunni á Íslandi! > Hafðu samband: [email protected]

Address

Box 8085, 121 Reykjavík
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ManUtd Iceland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category