Knattspyrnudeild Fram

Knattspyrnudeild Fram Síða knattspyrnudeildar Fram. Hér getur þú séð fréttir úr starfi meistara- og yngri flokka.

Strákarnir okkar fara í Sunny Kef í dag og mæta þar heimamönnum í 24. umferð Bestu deildarinnar.Leikurinn hefst á HS Ork...
20/09/2026

Strákarnir okkar fara í Sunny Kef í dag og mæta þar heimamönnum í 24. umferð Bestu deildarinnar.

Leikurinn hefst á HS Orku vellinum kl. 16:00.

Fjölmennum til Keflavíkur og styðjum strákana til sigurs.

Áfram Fram!

Úrslitaleikir Íslandsmóts 5.flokks kvenna fara fram í dag.Við Framarar eigum tvö lið í úrslitum og þau spila bæði til úr...
20/09/2026

Úrslitaleikir Íslandsmóts 5.flokks kvenna fara fram í dag.

Við Framarar eigum tvö lið í úrslitum og þau spila bæði til úrslita á heimvelli, Lambhagavellinum.

D-liðið mætir Selfossi kl. 11:00 og C-liðið mætir Fylki kl. 12:30.

Stelpurnar í 5.flokki hafa staðið sig frábærlega í sumar og við hvetjum knattspyrnuáhugamenn til þess að fjölmenna á Lambhagavöllinn í dag og styðja liðin.

Helgi Sigurðsson hefur framlengt samning sinn við Fram og verður áfram aðstoðarþjálfari Rúnars Kristinssonar út tímabili...
18/09/2026

Helgi Sigurðsson hefur framlengt samning sinn við Fram og verður áfram aðstoðarþjálfari Rúnars Kristinssonar út tímabilið 2028.

Helgi þekkir félagið vel eftir að hafa leikið með Fram á sínum leikmannaferli og sneri aftur í þjálfarateymið haustið 2023. Hann býr yfir mikilli reynslu úr atvinnumennsku, á að baki 62 A-landsleiki fyrir Ísland og hefur meðal annars þjálfað Fylki, ÍBV og Grindavík.

„Við erum með besta þjálfarateymi á Íslandi og að framlengja samning Helga er stór liður í því að svo verði áfram næstu árin“ segir Sigurður Hrannar Björnsson, formaður meistaraflokksráðs karla.

Við erum afar ánægð með að hafa Helga áfram með okkur og hlökkum til framhaldsins!

Stelpurnar okkar taka á móti Víkingum í gríðarlega mikilvægum leik á morgun föstudag kl. 18:00 á Lambhagavelli.  Frítt e...
17/09/2026

Stelpurnar okkar taka á móti Víkingum í gríðarlega mikilvægum leik á morgun föstudag kl. 18:00 á Lambhagavelli.

Frítt er á leikinn í boði Verkþekkingar.

Þetta er fyrsti leikur liðanna í úrslitakeppni neðri hluta Bestu deildarinnar.

Við ætlum að ná í stigin 3 og hvetjum alla FRAMara til þess að mæta á Lambhagavöll annað kvöld og hjálpa stelpunum í sinni baráttu.

Eins og áður segir er frítt á leikinn í boði Verkþekkingar og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Áfram FRAM!

Freyr Sigurðsson hefur verið valinn í landsliðshóp Íslands U21 fyrir komandi verkefni.Ísland leikur gegn Frakklandi 25. ...
16/09/2026

Freyr Sigurðsson hefur verið valinn í landsliðshóp Íslands U21 fyrir komandi verkefni.

Ísland leikur gegn Frakklandi 25. september á Pepsi vellinum, gegn Sviss 29. september á Pepsi vellinum og Færeyjum á Tórsvellinum í Færeyjum 6. október. Leikirnir eru liður í undankeppni EM 2027.

Framarinn Viktor Bjarki Daðason, leikmaður FCK, var einnig valinn í hópinn og óskum við okkar mönnum og íslenska liðinu góðs gengis.

Í leiknum gegn Blikum í kvöld bera leikmenn Fram sorgarbönd til minningar um Hólmbert Friðjónsson, fyrrverandi þjálfara ...
15/09/2026

Í leiknum gegn Blikum í kvöld bera leikmenn Fram sorgarbönd til minningar um Hólmbert Friðjónsson, fyrrverandi þjálfara Fram, sem lést á dögunum, 85 ára að aldri.

Hólmbert tók við þjálfun meistaraflokks karla hjá Fram árið 1979 og stýrði liðinu í þrjú ár, til ársins 1981. Tími hans hjá félaginu var afar farsæll. Undir stjórn Hólmberts varð Fram bikarmeistari tvö ár í röð, 1979 og 1980, og liðið hafnaði í öðru sæti Íslandsmótsins bæði 1980 og 1981.

Hólmbert átti langan og farsælan feril í íslenskri knattspyrnu, bæði sem leikmaður og þjálfari, og stýrði alls 191 leik í efstu deild karla. Hann þjálfaði einnig Keflavík, Njarðvík og KR auk 21 árs landsliðs Íslands.

Knattspyrnudeild Fram minnist Hólmberts með hlýhug og þakklæti fyrir hans mikilvæga framlag til sögu félagsins.

Fjölskyldu Hólmberts og aðstandendum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Lokaspretturinn hefst á morgun! Kæru FRAMarar - þá eru það síðustu 5 leikirnir í þessu íslandsmóti! Strákarnir okkar tak...
14/09/2026

Lokaspretturinn hefst á morgun!

Kæru FRAMarar - þá eru það síðustu 5 leikirnir í þessu íslandsmóti! Strákarnir okkar taka á móti Breiðablik og hvetjum við ykkur öll til þess að fjölmenna í dalinn okkar fagra - hvetja strákana áfram og sigla þessum 3 stigum heim! 💙💙

⚽ FRAM - Breiðablik
📆 Þriðjudaginn 15.september
🕛 19:15
📍 Lambhagavöllur

Strákarnir okkar fara Í Víkina á morgun sunnudag og mæta þar Víkingum kl. 14:00.Stefnan er sett á sigur og 2. sætið í de...
05/09/2026

Strákarnir okkar fara Í Víkina á morgun sunnudag og mæta þar Víkingum kl. 14:00.

Stefnan er sett á sigur og 2. sætið í deildinni fyrir úrslitakeppnina.

Til þess að það verði að veruleika þurfa strákarnir allan þann stuðning sem mögulegur er úr stúkunni.

Framarar! Fjölmennum í Víkina í bláu og hvetjum strákana okkar áfram til sigurs!

Stelpurnar okkar fara til Vestmannaeyja á morgun laugardag og mæta þar ÍBV á Hásteinsvelli kl. 15:30.Þetta er lokaleikur...
04/09/2026

Stelpurnar okkar fara til Vestmannaeyja á morgun laugardag og mæta þar ÍBV á Hásteinsvelli kl. 15:30.

Þetta er lokaleikur liðanna í Bestu deildinni fyrir úrslitakeppni.

Við hvetjum alla Framara sem hafa tök á að skella sér í dagsferð til Eyja og styðja okkar konur til sigurs.

Getraunastarfið hefst á ný.Hið margrómaða getraunastarf Fram hefst laugardaginn 5. september og verður starfrækt milli k...
04/09/2026

Getraunastarfið hefst á ný.

Hið margrómaða getraunastarf Fram hefst laugardaginn 5. september og verður starfrækt milli klukkan 10 og 12 á laugardögum í vetur.

Spekingar og spámenn hittast í Framhúsinu í Úlfarsárdal á laugardögum, ræða málin í sem víðustum skilningi og fylla út getraunaseðla helgarinnar.

Fjölmargir möguleikar og getraunakerfi eru í boði í frábærum félagsskap.

Kíktu í kaffi milli klukkan 10 og 12 á laugardögum.

Allir velkomnir

Address

Úlfarsbraut 126
Reykjavík
113

Telephone

+3545335600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Knattspyrnudeild Fram posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category