Yoga & Heilsa
Yoga & Heilsa er hlýlegt og vinalegt yogastúdíó í Faxafeni 10.
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af yogatímum, persónulega kennslu og leggjum mikla áherslu á að hver og einn geti fundið yoga við sitt hæfi.
06/05/2026
Gefðu þér tíma fyrir líkama og huga í sumar 🌸
📅 6. maí – 20. ágúst (lokað 27. júlí – 4. ágúst)
✨ Allt að 12 tímar á viku, kennsla fyrir öll stig og reyndir kennarar sem taka vel á móti þér
🧘♀️ Hatha jóga, Iyengar jóga, Yin jóga og Restorative jóga.
🤍 Velkomin í ró, styrk og vellíðan.
Til að kaupa klippikort ýttu á hlekkinn hér að neðan 👇
https://yogaogheilsa.is/kaupa-namskeid/
29/04/2026
HUGARRÓ NÝR TÍMI - 5. MAÍ
Tími fyrir þig - bara til að vera ❤
HugarRó hentar einstaklega vel þeim sem eru að jafna sig eftir veikindi og þeim sem glíma við mikla streitu, kvíða, kulnun og vilja styrkja fókus, andlega og líkamlega heilsu.
Nánar um námskeið og skráning í hlekknum hér að neðan 👇
27/04/2026
Gott jógasumar framundan
27/04/2026
Við tökum höndum saman til að tvöfalda valmöguleikana þína fyrir jóga í sumar. Yoga&Heilsa og Asana jóga.
21/04/2026
SUMARIÐ ER HANDAN VIÐ HORNIÐ
Nú er sumarið rétt handan við hornið og við höfum sett saman mjög spennandi sumardagskrá í samstarfi við Asana Jóga. Þið getið mætt í tíma bæði hjá Yoga & Heilsu og hjá Asana Jóga og kynnst mismunandi kennurum og áherslum. Dagskráin hefst 6. maí og við erum með ótrúlegt tilboð þangað til 1. maí.
Aðeins 40 þúsund krónur fyrir allt sumarið! Sjá nánari dagskrá og kaupa sumarkort í linknum hér að neðan 👇
🌿SUMARKORT🌿 TILBOÐ TIL 1. MAÍ🌿
40.000 kr. fyrir allt sumarið eða 12.900 kr. á mánuði (4 mánaða skuldbinding).
Nánari upplýsingar um stundaskrá og kaupa sumarkort í hlekknum hér að neðan
🤍 Velkomin í ró, styrk og vellíðan
13/04/2026
HUGARRÓ HEFST AFTUR 28. APRÍL
Á þessu námskeiði ætlum við að kyrra hugann, róa taugakerfið, mýkja líkamann og auka andlega vellíðan. Markmið námskeiðsins er að hlúa að okkur sjálfum í mýkt, að auka vellíðan með því að hreyfa líkamann með mjúkum teygjum og hreyfingum, að kyrra hugann með öndunaræfingum, að endurnæra líkamann og taugakerfið með yoga nidra hugleiðslu og djúpslökun og að taka skref í átt að betri heilsu. ✨
Hægt er að skrá sig í HugarRó í hlekknum hér að neðan 👇
https://yogaogheilsa.is/hugarro-i-att-ad-betri-heilsu/
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Faxafen 10, 2. Hæð
Reykjavík
108
Opening Hours
| Monday | 07:00 - 21:00 |
| Tuesday | 07:00 - 21:00 |
| Wednesday | 07:00 - 21:00 |
| Thursday | 07:00 - 21:00 |
| Friday | 07:00 - 21:00 |
| Saturday | 10:00 - 13:00 |