Karmað

Karmað Þín vellíðan í eigin hendur ✨ Umbreytandi ferðalag gæti hafist hér.

22/09/2026

Mig hefur lengi langað að tengjast betur norrænu goðafræðinni og þeim eiginleikum búa í okkar gyðjum og goðum. Þessi mantra kom til mín um daginn og fær að fylgja okkur inni í vikuna ✨

Heil mamma, heil mamma Freyja
Heil mamma, heil mamma F***g
Heil mamma, heil mamma Skaði
Heil mamma, heil mamma Hel

✨

Töfrandi vika fram undan hjá okkur ✨Möntrukórinn hefur göngu sína aftur á morgun, þriðjudaginn 22. september kl. 20, í L...
21/09/2026

Töfrandi vika fram undan hjá okkur ✨

Möntrukórinn hefur göngu sína aftur á morgun, þriðjudaginn 22. september kl. 20, í Leiðin heim salnum á Laugavegi 178.

Kórinn hittist einu sinni í viku og syngur saman möntrur og söngva. Fyrstu tveir tímarnir eru opnir öllum sem vilja koma og prófa og mögulega verður spennandi leynigestur með okkur á morgun 🤭

Á fimmtudaginn 24. september verða innilegir tónleikar með portúgölsku tónlistarkonunni Sari Seramor á Mama Reykjavík. Eygló byrjar kvöldið ásamt, Kristrúnu og Sveinbirni sem taka nokkur lög áður en Sari stígur á svið ✨

Á laugardaginn 26. september verður Sari svo í Bolholti 4, á 4. hæð, með Somatic Voice Activation vinnustofu og síðar um daginn kakóathöfn og sönghring.

Nánari upplýsingar um alla viðburðina og miðar á karmad.is 🌿

Töfrandi vika fram undan hjá okkur ✨Möntrukórinn  hefur göngu sína aftur á morgun, þriðjudaginn 22. september kl. 20, í ...
21/09/2026

Töfrandi vika fram undan hjá okkur ✨

Möntrukórinn hefur göngu sína aftur á morgun, þriðjudaginn 22. september kl. 20, í Leiðin heim salnum við Laugaveg 178. Kórinn hittist einu sinni í viku og syngur saman möntrur og söngva. Fyrstu tveir tímarnir eru opnir öllum sem vilja koma og prófa og mögulega verður spennandi leynigestur með okkur á morgun 🤭

Á fimmtudaginn 24. september verða innilegir tónleikar með portúgölsku tónlistarkonunni Sari Seramor á Mama Reykjavík. Eygló byrjar kvöldið ásamt Kristrúnu og og taka nokkur lög áður en Sari stígur á svið ✨

Á laugardaginn 26. september verður Sari Seramor svo í Bolholti 4 (4.hæð) með Somatic Voice Activation vinnustofu og síðar um daginn kakóathöfn + sönghring.

Nánari upplýsingar um alla viðburðina má finna á https://karmad.is/ 🌿

13/09/2026

✨ GJAFALEIKUR ✨

Í tilefni þess að Sari Seramor er að koma til Íslands ætlum við að gefa 2 x 2 miða á tónleikana hennar fimmtudaginn 24. september 🩷

Til að vera með:
✨ Fylgdu og .is
✨ Taggaðu þann sem þú myndir vilja taka með þér
✨ Deildu í story ef þú vilt hjálpa okkur að láta orðið berast 🙏

Dregið verður úr pottinum 18. sept

Tónleikarnir verða á White Lotus, Bankastræti 2, fimmtudaginn 24. september kl: 20

Möntrukórinn byrjar aftur 22. september 🤗Skráning í Möntrukórinn er hafin ☺️ Möntrukórinn er opinn öllum sem vilja hitta...
13/09/2026

Möntrukórinn byrjar aftur 22. september 🤗

Skráning í Möntrukórinn er hafin ☺️ Möntrukórinn er opinn öllum sem vilja hittast einu sinni í viku og syngja saman. Í hverjum tíma er ein mantra í sérstökum fókus og merking hennar, tilgangur og áhrif skoðuð. Einnig er sungin fjölbreytt blanda af lögum og möntrum, bæði gömlum og nýjum, og öðru hverju koma gestakennarar með nýjar áherslur inn í starfið.

Engin reynsla af söng er nauðsynleg.

Þriðjudagar kl. 20:00–21:30
Leiðin heim, Laugavegi 178

Skráning á [email protected] eða á karmad.is 🤍

08/09/2026

heldur tónleika á Íslandi fimmtudaginn 24.september á ()

Miðasala á tónleikana fer fram á tix.is

Laugrdaginn 26. september verður hún með tvo viðburði sem hægt er að lesa nánar um á karmad.is ( sjá link í bio)

Early bid verð á alla viðburði saman til 10.sept

🩷

will be performing live in Iceland on Thursday, September 24 at ().

Tickets for the concert are available at tix.is.

On Saturday, September 26, she will be hosting two additional events. Find out more at karmad.is (link in bio).

Early bird pricing for the full three-event package is available until September 10 🩷

20/08/2026

Anna Bariyani úr Curawaka segir hér aðeins frá því sem við megum búast við í Weaving Voice & Spirit núna á laugardaginn 🌿✨ Einstakt tækifæri til að læra af og vinna með einni af þekktustu röddum spiritual tónlistar í heiminum í dag. Anna deilir sinni einstöku nálgun á röddina, sönginn og sköpunina og leiðir okkur dýpra inn í kraftinn sem býr í okkar eigin rödd.

📅 Laugardaginn 22. ágúst
⏰ Kl. 14:00–17:00
📍 Yoga Shala, Skeifan 7
Verð: 14.900 kr.

Skráning á [email protected]

10/08/2026

Weaving Voice & Spirit ✨

Workshop með Önnu Bariyani (Curawaka)

Uppgötvaðu kraft raddarinnar með Önnu Bariyani, söngkonu, lagahöfundi og hljómsveitarinnar Curawaka.

Anna hefur um árabil ferðast, skapað tónlist og lært af ólíkum menningarheimum og frumbyggjasamfélögum. Í tónlist sinni fléttar hún saman norrænum rótum sínum, áhrifum frá Suður-Ameríku, bæn, náttúru og andlegri iðkun. Röddin hefur þar ávallt verið hennar helsti farvegur til tjáningar og tengingar.

Í þessari umbreytandi vinnustofu leiðir Anna þátttakendur inn í heim raddar, bænar og meðvitaðrar sköpunar. Með söng og fjölbreyttum raddæfingum könnum við ólíkar hliðar raddarinnar og lærum að tengjast henni á dýpri og frjálsari hátt.

Við vinnum með þá hugmynd að „vefja“ saman rödd og anda og leyfa röddinni að verða farvegur fyrir tilfinningar, innsæi, ásetning og innblástur. Við skoðum hvernig hægt er að losa um hömlur, finna okkar eigin sönnu rödd og gefa henni rými til að tjá það sem býr innra með okkur.
Röddin getur verið meira en hljóð. Hún getur verið bæn, sköpun og lækning; leið til að tengjast okkur sjálfum, hvert öðru og einhverju stærra.
Námskeiðið er fyrir alla sem vilja kanna röddina, sköpunarkraftinn og tenginguna sem í henni býr.

Engin fyrri reynsla af söng er nauðsynleg.
Takmarkaður fjöldi plássa í boði.

Hvenar? 22. ágúst, frá kl 14:00 til 17:00
Hvar? Yoga Shala Reykjavík
Verð: 15.000 kr

Skráning og frekari upplýsingar á [email protected]

03/05/2026

Vertu velkomin í djúpt nærandi 80 mínútna gusu fyrir líkama og sál 🔥💦

Við byrjum á bolla af hjartaopnandi kakói frá Guatemala sem hjálpar okkur að mæta mjúklega inn í stundina og tengjast okkur sjálfum. Að því loknu taka við þrjár kraftmiklar gusulotur þar sem lifandi möntrusöngur leiðir okkur inn á við. Hægt er að taka undir sönginn og leyfa röddinni að bera okkur í gegnum hitann, inn í kyrrð og dýpri tengingu. Á milli lotna gefst tími til að kæla sig úti í fersku lofti eða taka dýfu í sjónum fyrir þá sem vilja.
Eftir þriðju lotu endum við kvöldið í slakandi tónabaði þar sem líkaminn fær að lenda rólega og hugurinn að fá hvíld. Markmiðið er að sleppa taki, róa hugann og gleyma sér í hita, takti og tónum.
✨
Leiðbeinendur:
Eygló Scheving er tónlistarkona, jógakennari og tónheilari. Hún hefur ástríðu fyrir möntrusöng og tónlist sem styður við innri ró, tengingu og jafnvægi. Hún leiðir möntrukór sem hittist vikulega og skapar rými fyrir sameiginlega söngupplifun.

Guðmundur Már Einarsson er hot yoga kennari með mikla reynslu af vinnu með líkamann í hita. Hann þekkir vel áhrif hitans á líkama og huga og hefur lagt stund á nám í jógafræðum og shamanisma í Bandaríkjunum og Kosta Ríka.
Bæði hafa þau lokið gusumeistaranámi og sameina hér krafta sína til að skapa einstaka og nærandi upplifun.

Skráning á fjargufa.is

28/04/2026

Mantra vikunnar:

Om Namah Shivaya Gurave -

Om Namah
Shivaya Gurave
Satchidananda Murtaye
Nishprapanchaya Shantaya
Niralambaya
Tejase

Om Namah - Om Namah
—
Ég hneigi mig fyrir því sem ég er í raun og veru
fyrir kyrrðinni, viskunni og ljósinu innra með mér
og ég leyfi því að leiða mig

Address

Síðumúli 35
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Karmað posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category