21/09/2026
HEILANDI MÁTTUR HVÍLDAR 26. - 27. SEPT
Kyrrðahelgi með Ástu Arnardóttur
Verð 49.000 - innifalið hádegimatur, cacau og prufuvika i Yogavin
Skráning [email protected]
www.yogavin.is
Kyrrðarhelgin er nærandi tími til að hægja á og hlúa að líkama og sál á hjartnæman hátt. Með sjálfsmildi og alúð að leiðarljósi könnum við heilandi mátt hvíldar.
Núvitund hugleiðsla
Yin yoga
Yoga nidra djúpslökun
Fléttað saman fræðslu og iðkun á skapandi og heilnæman hátt þar sem þátttakendur fá beina reynslu af heilandi áhrifum yogaiðkunar, djúpri hvíld og endurheimt lífsorku.
Kennd grunntæknin í yin yoga, núvitund og yoga nidra. Fjallað um áhrif á líkama, taugakerfið, orkusvið og huga.
Hvatning til að heiðra þína leið til heilunar, innsæis og hjartagæsku.
Kyrrðarhelgin fer fram í þögn sem gefur djúpa og nærandi hvíld frá erilsömu lífi og dagsins önn.
Kyrrðahelgin er opin öllum og jafnframt fyrsta lota í 60 tíma yogakennaranámi í Yin yoga & núvitund.
ÁSTA ARNARDÓTTIR hefur víðtæka reynslu af iðkun og kennslu yoga og núvitundar. Hún hefur kennt yoga frá 1999. Hún er stofnfélagi Félags umvipassana hugleiðslu og hefur kennt kyrrðarvökur á vegum félagsins frá 2011. Ásta hefur stundað vipassana hugleiðslu frá 1997 og farið reglulega á kyrrðarvökur (silent retreat) til Gaia House, Spirit Rock Meditation Center og IMS en þar tók hún þátt í 3 mánaðar kyrrðarvöku haustið 2013. Ásta hefur kennt yogakennaranám frá 2010 og Yin yoga & núvitund 60 tíma kennaranám frá 2025. Ásta leggur áherslu á skapandi og persónulega iðkun þar sem hver og einn finnur aukið frelsi og dýpri sátt.
SKRÁNING [email protected]
NÁNARI UPPLÝSINGAR www.yogavin.is