26/08/2026
Sara Snædís, nýr forstöðumaður þjálfunar hjá Hreyfingu, í skemmtilegu viðtali hjá mbl.is þar sem hún fer yfir sögu sína frá því hún byrjaði sem hóptímaþjálfari í Hreyfingu 2012 þar til hún lokar nú hringnum þegar hún stígur inn í nýtt og spennandi hlutverk 🌟
„Það eru ákveðin kaflaskil hjá mér um þessar mundir. Eftir sjö ár erlendis er ég flutt aftur heim til Íslands með fjölskyldunni, nýbúin að eignast mitt þriðja barn og tekin við nýju starfi sem forstöðumaður þjálfunar hjá Hreyfingu."
Sara hefur komið víða við og meðal annars var hún yfirþjálfari hjá Becore í Stokkhólmi ásamt því að stofna Withsara sem var mikill skóli.
"Árin í Stokkhólmi voru mjög mikilvæg fyrir mig. Við vorum með tvö lítil börn, bjuggum í miðbæ Stokkhólms og vorum langt frá fjölskyldunni og því baklandi sem maður hefur heima. Á sama tíma tók Withsara hratt við sér og ég var að byggja upp fyrirtæki frá grunni. Það kallaði á mikla vinnu og ótal skref út fyrir þægindarammann. Til dæmis að þurfa að selja hugmyndina mína og standa með henni yfir í að ráða fólk, leiða teymi og vera andlit vörumerkis,“ segir hún.
Við mælum með þessari skemmtilegu lesningu og hlökkum til komandi tímum með Söru 💛
Sara Snædís nýr forstöðumaður hjá Hreyfingu