Asana Jóga

Asana Jóga 🔗https://asanajoga.is🌷Hér deili ég með ykkur viðburðum, námi og fræðslu um jógatengd málefni.

Brigitta, a senior Iyengar yoga teacher, guided us through all kinds of twists today—some of them quite twisty! 😊There i...
20/09/2026

Brigitta, a senior Iyengar yoga teacher, guided us through all kinds of twists today—some of them quite twisty! 😊

There is always something new to learn: about ourselves, about the body, and about how we can approach familiar poses in a different way.

A big thank you to Brigitta for sharing her knowledge and teaching us today. 🙏

Brigitta, a senior Iyengar yoga teacher, guided us through all kinds of twists today, some of them quite twisty! 😊There ...
20/09/2026

Brigitta, a senior Iyengar yoga teacher, guided us through all kinds of twists today, some of them quite twisty! 😊

There is always something new to learn: about ourselves, about the body, and about how we can approach familiar poses in a different way.

A big thank you to Brigitta for sharing her knowledge and teaching us today. 🙏

14/09/2026

RESTORATIVE JÓGAKENNARANÁM – 30 KLST.

Langar þig að læra að skapa rými þar sem fólk getur raunverulega hægt á, hvílst og endurheimt sig?

Í febrúar 2027 bjóðum við í fyrsta sinn upp á 30 klst. Restorative jógakennaranám hjá Asana Jóga.

Námið er verklegt og byggir á því að læra ekki aðeins stöðurnar sjálfar heldur að skilja hvernig og hvers vegna við styðjum líkamann – og hvernig við aðlögum iðkunina að ólíkum einstaklingum.

Við vinnum meðal annars með:

• Restorative stöður og uppbyggingu þeirra
• lífeðlisfræði slökunar og taugakerfið
• jógabúnað – bolster, teppi, kubba, belti og stóla
• að lesa líkamann og finna réttan stuðning
• leiðsögn, nærveru og raddbeitingu
• uppbyggingu Restorative jógatíma
• verklega kennslu og handleiðslu

Kennarar: Bríet Birgisdóttir og Unnur Einarsdóttir

13.–14. og 27.–28. febrúar 2027
Asana Jóga – Faxafen 10

Early Bird verð 139.000 kr. til 1. desember
Fullt verð 149.000 kr.
Hægt að skipta í allt að 4 greiðslur.

Aðeins 13 pláss í boði.

Nánari upplýsingar og skráning á asanajoga.is

Fyrir þig sem vilt dýpka eigin iðkun eða öðlast færni og öryggi til að miðla Restorative jóga áfram.

13/09/2026

Brigitta Tummon kemur í heimsókn
Það er okkur mikil ánægja að fá Brigittu Tummon í heimsókn til Asana Jóga.
Brigitta er mjög reyndur Iyengar jógakennari og hefur kennt jóga í áratugi í Hollandi, Sviss, Suður-Afríku og Noregi. Hún lærði hjá B.K.S. Iyengar og kemur með mikla reynslu og þekkingu inn í kennsluna.
Þetta verður einstakt tækifæri til að iðka með henni hér á Íslandi
Sunnudaginn 20. september kl. 12:15 -14:15
Creating Inner Space – innra rými

Við getum aðeins haft takmörkuð áhrif á heiminn í kringum okkur en við getum breytt því hvernig við mætum honum. Með jóga, meðvitaðri hreyfingu og öndun leitum við inn á við, sköpum meira rými og finnum innra jafnvægi. Þegar hugurinn verður rólegri og skýrari eigum við auðveldara með að gefa bæði okkur sjálfum og öðrum meira rými.
Verð 7.000 kr.
https://www.momoyoga.com/asanajoga/event/f375a1b3-11de-4795-8386-85b0ac21332f

09/09/2026

Restorative jóga – djúp hvíld og endurnæring

Á þessu fjögurra vikna námskeiði gefum við líkamanum tíma og stuðning til að hægja á, losa um spennu og endurheimta jafnvægi. Í restorative jóga er dvalið lengur í mjúkum stöðum þar sem púðar, teppi og annar búnaður styður líkamann að fullu.

Tímarnir henta öllum sem vilja draga úr streitu, bæta svefn og skapa meira rými fyrir hvíld í daglegu lífi. Engin fyrri reynsla af jóga er nauðsynleg og allur búnaður er á staðnum.

Miðvikudagar kl. 13:30–15:00
14. september–7. október
Asana Jóga, Faxafeni 10, 2. hæð
Verð: 29.900 kr.
Skráning á asanajoga.is

08/09/2026

Iyengar-jóga einkennist af nákvæmni, stöðugleika og meðvitaðri vinnu í stöðunum.

Æfingin er aðlöguð að hverjum iðkanda með hjálp búnaðar eins og kubba, belta, stóla og veggbanda. Þannig fær líkaminn þann stuðning sem hann þarf og allir geta tekið þátt – óháð aldri, liðleika eða fyrri reynslu.

Markmiðið er ekki að komast sem lengst í stöðuna, heldur að finna jafnvægi, rými og styrk á öruggan og nærandi hátt.

08/09/2026

BYRJENDAJÓGA MEÐ UNNI

Langar þig að byrja í jóga en veist ekki alveg hvar þú átt að byrja?

Á þessu átta vikna námskeiði kennir Unnur grunnstöður jóga á rólegan og skýran hátt. Lögð er áhersla á rétta líkamsbeitingu, aukinn styrk, liðleika og betra jafnvægi. Kennslan er aðlöguð að hverjum og einum og því er engin fyrri reynsla nauðsynleg.

Allur búnaður er á staðnum. Þú þarft aðeins að mæta í þægilegum fötum og vera tilbúin/n að gefa þér tíma fyrir þig.

Mánudagar og miðvikudagar kl. 19:45–20:45
Hefst 14. september
Kennari: Unnur Einarsdóttir
Asana Jóga, Faxafeni 10, 2. hæð

Asanajoga.is

05/09/2026

Malaga ❤️

Address

Faxafen 10
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Asana Jóga posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Asana Jóga:

Shortcuts

Share

Category