Litla yogastofan

Litla yogastofan

Share

Litla yogastofan býður yoga tíma fyrir litla hópa innandyra eða úti, allt eftir því sem hentar.

09/05/2026

Síðasti tími fyrir sumarleyfi Litlu jógastofunnar í Hjartanu verður opinn tími á uppstigningardag. Við byrjum tímann kl. 9:30 og honum lýkur kl. 10:45 að lokinnni leiddri djúpslökun.

Verið velkomin - skráning með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]
Sjá nánar: Liðka-styrkja-slaka inn í sumarið

18/04/2026

Verið öll velkomin í Hjartað í jóga
Sjá: Liðka-styrkja-slaka inn í sumarið

Photos from Litla yogastofan's post 29/12/2025

Ágætu jógaiðkendur -
um leið og ég óska ykkur gleðilegs nýs árs, þakka ég fyrir samfylgdina í Hjartanu á árinu sem er að líða.

✨ Á nýju ári býður Litla yogastofan námskeiðið Liðka-styrkja-slaka sem er einu sinni í viku og jóga nidra einu sinni í mánuði.

Verið velkomin í Hjartað í Hrafnagilsskóla -
Ingileif

15/12/2025

Takk fyrir góðar viðtökur. Allar dýnur eru nú pantaðar.
Gleðilega hátíð kæru vinir 🎄

Yoga nidra á aðventu
Þriðjudaginn 16. des. kl. 17-18 býður Litla jógastofan tíma í yoga nidra.

⭐️ Jóga nidra er leidd hugleiðsla milli svefns og vöku. Í þessu ástandi næst slökun þar sem hugur og líkami ná djúpri og nærandi hvíld.
⭐️ Við munum byrja tímann með léttri liðkun líkamans. Síðan leggjast iðkendur undir teppi með púða sér til stuðnings og eru leidd inn í djúpa slökun.
✍🏻 Ath. skráning í tímann er með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]

08/12/2025

Yoga nidra á aðventu
Þriðjudaginn 16. des. kl. 17-18 býður Litla jógastofan tíma í yoga nidra.

⭐️ Jóga nidra er leidd hugleiðsla milli svefns og vöku. Í þessu ástandi næst slökun þar sem hugur og líkami ná djúpri og nærandi hvíld.
⭐️ Við munum byrja tímann með léttri liðkun líkamans. Síðan leggjast iðkendur undir teppi með púða sér til stuðnings og eru leidd inn í djúpa slökun.
✍🏻 Ath. skráning í tímann er með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]

13/11/2025

Vegna forfalla fellur jógatíminn niður í dag 💜

21/09/2025

🕉️ Litla yogastofan verður með í dagskrá Íþróttaviku Evrópu í Eyjafjarðarsveit. Boðið verður í tvo jógatíma þriðjudaginn 30. september í Hjartanu í Hrafnagilsskóla.
🟣 Fyrri tíminn verður kl. 16.30-17.15. Hann verður rólegur tími þar sem við styrkjum og liðkum líkamann og ljúkum tímanum svo með leiddri djúpslökun.
🟣 Seinni tíminn verður kl. 17.30-18.15. Í honum verður iðkað jóga nidra sem er leidd djúpslökun sem losar um streitu, veitir heilandi hvíld og stuðlar að jafnvægi.
🕉️ Fyrir þau sem hafa tök á því að mæta í báða tímana þá er það tilvalið.
💜 Allur búnaður verður á staðnum og tímarnir eru þátttakendum að kostnaðarlausu.

Sjá alla dagskrá virknivikunnar á myndinni sem fylgir þessari færslu.

15/09/2025

🧡 Kæru jógaiðkendur
Dagsetningar fyrsta haustnámskeiðs Litlu jógastofunnar eru eftirfarandi:

🧡 Miðvikudaginn 1. okt.
🍂 Fimmtudaginn 9. okt.
🍂 Fimmtudaginn 23. okt.
🍂 Fimmtudaginn 30. okt.
🧡 Miðvikudaginn 5. nóv.
🍂 Fimmtudaginn 13. nóv.

⏰ Tímarnir verða kl. 17:00-18:15.

Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum. Í hverjum tíma eru gerðar stöður og seríur þar sem við hugum að einu svæði líkamans auk miðjustyrks. Öllum tímum lýkur með leiddri djúpslökun. Sjá nánar: https://fb.me/e/1NDVNQGG97

✍🏻 Skráning er með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]
Námskeiðið kostar 12 000 kr. Það er líka hægt að kaupa staka tíma á 2500 kr.

08/09/2025

🍂 Við byrjum vetrarstarfið með haustnámskeiði í byrjun október.
🍂 Fylgstu með á næstu dögum því þá auglýsi ég dagsetningar tímanna okkar og skráning hefst.
🤎Ég hlakka til að vera með ykkur í Hjartanu í Hrafnagilsskóla einu sinni í viku í vetur.
🧡 Ingileif

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Website

Address


Hjallatröð 1
Akureyri
605