02/11/2026
Alltaf fyrstur í stúkuna👊
Hafþór Gerhardt er KR-ingur mánaðarins! 🖤🤍
Hafþór hefur staðið þétt við bakið á bæði kvenna- og karlaliðinu í mörg ár og lætur sig aldrei vanta í stúkuna, sama hvernig viðrar eða hvar er spilað og KR fáninn alltaf með!
Hann hefur einnig hjálpað félaginu ósjaldan þegar þörf er á rafvirkja, bæði í neyðartilvikum og öðrum verkefnum.
Við þökkum Hafþóri kærlega fyrir ómetanlegan stuðning í sumar og í gegnum árin. Í tilefni þess fær hann gjafabréf á Flatey!
Sendu inn tilnefningu fyrir næsta KR-ing mánaðarins hér:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSefzBoZ--F-dp7k5UaFPc9F3d0B-64kQhS99vJSVOIssmtaig/viewform