02/06/2026
RÖTT
Rött ehf er umboðsaðili Fantic Motor á Íslandi. Mótorhjól-rafhjól-varahlutaþjónusta-verkstæði-verslun
02/06/2026
28/05/2026
Ath ! Opnunartími á morgun ! 08:00-12:30!
Kæru viðskiptavinir vegna enduro mótsins á Flúðum þá verður opið á morgun frá kl 08:00-12:30, til þess að ná dagskránni á morgun og setja upp pittinn okkar. Við mælum með að mæta á leikdaginn á morgun og hafa gaman með öllum 🏁 Ef ykkur vantar dekkjaþjónustu fyrir keppnina mælum við með að mæta eins snemma og hægt er uppí búð 💪
21/05/2026
🏔️ Ný kynslóð mætt: Crussis e-Full 10.11-PRO (2026)
Við kynnum nýjustu viðbótina í Crussis fjölskylduna – e-Full 10.11-PRO. Þetta er hjól fyrir þá sem þekkja gæði og gera kröfu um bestu mögulegu íhluti sem völ er á í dag.
Þótt hjólið sé nýtt í línunni, þá deilir það sama hágæða undirvagni og dýrustu „PRO“ týpurnar okkar. Hér er ekkert til sparað þegar kemur að fjöðrun, drifbúnaði og hemlum. Hjólið deilir sömu frábæru hönnun og Avinox hjóla lína frá Crussis nema þessi týpa er með Panasonic GXM drifrásinni í staðin fyrir Avinox.
Hágæða „PRO“ uppsetning:
SRAM GX Eagle AXS T-Type: Framtíðin í gírskiptingum. Þráðlaus nákvæmni og „Hangerless“ hönnun sem þolir meira hnjask en nokkur önnur skipting. Hún skiptir mjúklega jafnvel undir hámarks álagi í miðri brekku.
RockShox ZEB Ultimate (160 mm): Þetta er flaggskipið frá RockShox. Með 38 mm göflum fyrir hámarksstífni og ButterCups tækni sem eyðir titringi, færðu stjórn og mýkt sem þekkist ekki í venjulegum dempurum.
SRAM Maven Bronze: Nýjustu og öflugustu bremsurnar frá SRAM. Þær eru hannaðar til að skila gríðarlegum stöðvunarkrafti í löngum og tæknilegum niðurleiðum án þess að ofhitna.
Panasonic GXM (100 Nm): Aflmikill mótor sem skilar einu mesta togi á markaðnum. Hann gefur þér þann kraft sem til þarf til að takast á við íslenskar aðstæður af öryggi.
Hannað fyrir kröfuharða
Hjólið er byggt á sterku álgrind með 715 Wh LG rafhlöðu sem tryggir langa daga á fjallinu. Samsetningin á þessum íhlutum gerir þetta að einu öflugasta hjóli síns flokks, þar sem tæknilegir yfirburðir og ending fara saman.
📢 Forsala hafin – Væntanlegt um miðjan júní
Við fáum örfá eintök í þessari fyrstu sendingu og búist er við að þau seljist hratt upp miðað við þessa íhlutauppsetningu og frábæra verðs.
Verð: 845.000 kr.
Þetta er einstakt tækifæri til að eignast „PRO“ búnað á verði sem á sér enga hliðstæðu. Tryggðu þér eintak í forsölu og vertu klár í sumarið.
👉 Skoðaðu tæknilýsinguna og pantaðu hér: https://rott.is/vorur/crussis-e-full-10-11-pro-panasonic-715wh/
07/05/2026
Alex Salvini Enduro námskeið
Fantic á Íslandi kynnir einstakan viðburð í Bolöldu þar sem fagmennska og áratuga reynsla mætast. Við fáum til okkar Alex Salvini, heimsmeistara og yfirmann kappakstursmála hjá verksmiðjuliði Fantic, til að hjálpa íslenskum ökumönnum að hámarka árangur sinn.
Hver er Alex Salvini?
Salvini er einn skreyttasti ökumaður enduro-sögunnar, fyrrum Heimsmeistari í Enduro (2013) og 13-faldur Ítalíumeistari og einn fárra ökumanna sem hefur náð að sigra í öllum flokkum utanvegar mótorhjóla aksturs (MX, SX, Enduro og Dakar Motorally) Í dag starfar hann sem yfirmaður kappaksturs mála og liðsstjóri Fantic Factory Racing, aðalprufuökumaður hjá Fantic Motor og er hann hönnuður þeirra enduro hjóla sem við njótum í dag frá Fantic. Auk þess rekur hann sína eigin akademíu, "The Ride Academy".
Persónuleg nálgun í fyrirrúmi
Til að tryggja að hver og einn fái sem mest út úr kvöldinu er fjöldinn takmarkaður við aðeins 10 þátttakendur. Alex mun gefa sér tíma fyrir hvern ökumann, fylgjast með aksturslagi og veita persónulega ráðgjöf sem nýtist beint í 5 tíma keppnina á Flúðum helgina eftir.
Dekkja- og músaráðgjöf frá Plews Tyres
Rétt grip skiptir öllu máli á Flúðum. Á staðnum verður kynning á vörum frá Plews Tyres. Við förum yfir mismunandi dekk og mýs (mousse) og aðstoðum þig við að finna nákvæmlega þá uppsetningu sem hentar þínum akstursstíl og hjóli fyrir keppnina.
Það sem er innifalið:
✅ Persónuleg þjálfun: Línuval og tækni undir handleiðslu Alex Salvini.
✅ Dekkja-uppsetning: Sérhæfð ráðgjöf frá Plews Tyres fyrir Flúðir.
✅ Prufukeyrsla: Á hjólum frá Fantic: XE 300, XEF 310 og XEF 450.
✅ Veitingar: Léttar veitingar í boði á meðan farið er yfir málin.
Upplýsingar:
📍 Staður: Bolalda
📅 Dagsetning: Miðvikudagur 27. maí
⏰ Tími: 18:00 – 21:00 (mögulega lengur ef birta leyfir)
💰 Verð: 18.000 kr.
Þetta er sögulegt tækifæri til að fá einn færasta enduro-ökumann heims sem þinn persónulega þjálfara. Tryggðu þér pláss strax!
Skráning og nánari upplýsingar: senda mail á [email protected]
03/05/2026
Ný kynslóð Fantic væntanleg – Forpöntun er hafin ⚡️
Við kynnum 2026 línu rafmagnshjóla frá Fantic, þar sem ítölsk hönnun mætir nýjustu tæknibyltingu Bosch. Hvort sem þú velur sterkan álramma eða snerpuna sem carbon fiber ramminn skilar, þá býður nýja línan upp á akstursupplifun í hæsta gæðaflokki.
Öflugasta tækni Fantic til þessa:
• Nýr Bosch Gen 5 mótor: Nýjasta kynslóðin með 120 Nm togi sem tryggir gífurlegt afl en jafnframt mjúkt viðbragð við allar aðstæður.
• 800 Wh rafhlaða: Nýr og aukinn orkuforði sem hreinlega eyðir drægniskvíða í lengri ferðum og hægt að setja auka 250wh raflhöðu á stellið.
Val um ál eða carbon fiber:
✅ Ál-línan: Öflug og sterkbyggð hjól sem tækla hvaða áskorun sem er. Verð á ál-hjólum hefst á 785.000 kr.
✅ Carbon Fiber línan: Sierra FC línan skilar hámarks snerpu og lágri þyngd, eða allt niður í 22,3 kg.
Upplýsingar um forpöntun og afhendingu:
Hægt er að skoða alla nýju línuna og tæknilegar upplýsingar á rott.is.
Nú er hægt að tryggja sér hjól úr fyrstu sendingu, en fyrstu hjólin mæta í lok maí.
📩 Forpöntun fer fram í gegnum tölvupóst: Sendu okkur línu á [email protected] þar sem fram kemur tegund og stærð.
• Staðfesting: Við pöntun er greitt 25% staðfestingargjald.
Fantic 2026 – Kraftur, hönnun og nýjasta tæknin í einum pakka.
29/04/2026
Verslunin Moto, KTM ísland er viðurkenndur söluaðili Plews Tyres hjá okkur. Þau eru komin með allt frá okkur í Plews Tyres á lager hjá sér. Í sameiningu með traustum söluaðilum pössum við að þið fáið besta gripið um allt land 🏁 Fleiri sölustaðir kynntir bráðlega 😉
Full búð af dekkjum og mús.
Vissir þú að við skiptum um dekk fyrir þig líka? Hægt að koma með felguna, felgurnar eða hjólið.
Opið alla virka daga 10-17
Hægt að versla á netinu líka
https://ktm.is/collections/dekk
15/04/2026
Í síðustu viku afhentum við fyrsta Altis Sigma hjólið frá en hann Halldór fékk þá nýja Altis Sigma MX hjólið sitt, en vandaður frágangur og hágæða íhlutir einkenna þessa gerð. Sigma MX er smíðað til að skila hámarks afköstum þar sem hvert smáatriði er úthugsað til að tryggja sem bestu upplifun ökumannsins.
Það var sérstaklega gaman að sjá hversu ánægður og spenntur Halldór var með nýja gripinn. Við erum stolt af því að kynna þetta nýja merki á íslenskum markaði og óskum Halldóri innilega til hamingju með þetta fallega hjól 🏁🏁🎉
09/04/2026
Við viljum deila mikilvægum fréttum varðandi væntanlega forsölu á Crussis rafhjólum. 📢
Samhliða kynningu á hinu nýja Avinox M2S drifkerfi í dag (sem hefur nú verið einfaldað úr DJI AVINOX undir vörumerkið Avinox), höfum við ákveðið að fresta forsölu um 2 daga.
Við vinnum nú að því að uppfæra vefverslunina með nákvæmum tækniupplýsingum um þessa nýju kynslóð mótora svo allt sé klárt fyrir ykkur en öll hjólin frá CRUSSIS koma með flottustu týpunni af AVINOX mótornum sem heitir M2S. 🚀
🗓 Ný dagsetning:
Forsala hefst laugardaginn 11. apríl.
Af hverju er Avinox M2S að breyta leiknum? ⚡️
M2S kerfið setur nýja staðla í heimi rafhjóla:
🔹 Hámarksafl: Allt að 1500W (Peak power) í Boost.
🔹 Tog: 130 Nm en allt að 150 Nm í Boost mode.
🔹 Hraðhleðsla: 0-80% hleðsla á aðeins 84 mínútum.
🔹 Léttleiki: 12.11 PRO hjólið vigtar aðeins 19,96 kg (með 600Wh batterý).
🔹 Fjöðrun: 160mm að framan og 150mm að aftan.
🔹 Íhlutir: Allt það flottasta frá SRAM og FOX á frábærum verðum.
Verð CRUSSIS 2026 💰
E-full 11.11 (Ál-stell) (Myndir 10-11)
• 600Wh rafhlaða: 745.000 kr.
• 800Wh rafhlaða: 795.000 kr.
E-full 12.11 Carbon (Mynd 9)
• 800Wh rafhlaða: 998.000 kr.
E-full 12.11-PRO (Myndir 6-8)
• 600Wh rafhlaða: 1.365.000 kr.
• 800Wh rafhlaða: 1.399.000 kr.
E-full 12.11 – PRO X (Mynd 1-5)
• 800Wh rafhlaða: 1.875.000 kr.
Við biðjumst velvirðingar á seinkuninni en þessar tækniframfarir eru svo sannarlega biðarinnar virði. Þarna fer saman léttleiki, hágæða íhlutir og afl sem á sér enga hliðstæðu. ✨
🚢 Fyrstu hjól væntanleg í apríl, svo næst í maí og júlí.
⚠️ ATH: Þessi hjól verða í verulega takmörkuðu magni til að byrja með árið 2026 vegna mikillar eftirspurnar erlendis, því mælum við með að tryggja sér hjól sem fyrst.
Fylgist með á laugardaginn þegar við opnum fyrir pantanir! 🏁
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Skemmuvegur 32
Kópavogur
200
Opening Hours
| Monday | 10:00 - 18:00 |
| Tuesday | 10:00 - 18:00 |
| Wednesday | 10:00 - 18:00 |
| Thursday | 10:00 - 18:00 |
| Friday | 10:00 - 18:00 |